14.5.2008 | 12:10
Bara eitt barn veikt núna 7-9-13
Við Embla erum heima núna. Hún tók tvö ofurhóstaköst í nótt sem enduðu með endalausri slímælu tekur þetta aldrei enda? Þetta er búið að vera svona hjá henni á nóttunni síðan hún var 15 mánaða gömul, s.s. í nákvæmlega 1 og hálft ár! Maður þekkir það orðið á því hvernig hún hóstar þegar hún er nýsofnuð hvort hún á eftir að fá astmakast og æla seinna um kvöldið eða nóttina. Ömó sko.
Próflestur fyrir síðasta prófið er því af skornum skammti en ólíkt fyrra prófinu er þetta með "eðlilegu" magni af lesefni. Er ekki sérstaklega stressuð og ætla að massa þetta seinnipartinn í dag, í kvöld og á morgun. Svo er ég búúúúúiiiiiin!
Athugasemdir
Ohhh, ömurlegt þegar barnið manns er svona mikið lasið Vonandi jafnar hún sig fljótlega.
En TU TU á lokasprettinum, ofursúperhúberduglega kona
Anna Heiður 14.5.2008 kl. 16:23
Takk Anna mín, þú ert moli
Tinnhildur, 14.5.2008 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.