10.5.2008 | 16:18
Lespása
Sótti mér einn magic og ákvað að kíkja aðeins í tölvuna Mér gengur bara vel að lesa. Er aðeins að taka sálfræðina á sjálfa mig, ég tók nefnilega allar greinarnar sem átti að sleppa í hlunkinum úr og svo tek ég jafnóðum það sem ég er búin að lesa. Nú er bara smá eftir hehe.
Annars er ég helst núna að díla við stífleika í hálsi. Þegar ég var búin að græja yngri dóttur mína í svefninn í gærkvöldi þá barasta stífnaði ég upp hægra megin á hálsinum og hef bara ekki lagast. Er búin að prófa að nudda þetta sjálf, teygja á og snúa mér á alla kanta en ekkert gengur. Þetta er mjög vont í miklum lestri. Ætli ég hendi mér ekki í heitt bað í kvöld og panti hálsnudd frá eiginmanninum
6 dagar í sumarfrí........ víha!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.