4.5.2008 | 13:28
Svindl er mér nauðsynlegt í dag
Ég fór að sofa kl rúmlega 23 í gærkvöldi og fékk að sofa til 10 í morgun, þökk sé frábærum eiginmanni. Lestur fyrir félagsfræðipróf framundan og planið var sko að hafa engar afsakanir fyrir því að lesa ekki. Nei nei, ég tek upp hlunkinn (sem er btw lesefni námskeiðsins, les"hefti" upp á rúmlega 600 A4 síður), fletti upp á fyrsta kaflanum og byrja STRAX að geispa! Ákveðin í að láta það ekki skemma fyrir mér og byrja að lesa... nei nei, ég sofna næstum því fram á bókina! Hvað er málið með leiðinlegt lesefni?!?!?!?! Díses kræst!
En, sjálfsaginn, sem er eingöngu bundinn við skólann - ekkert annað, skipaði mér út í búð að kaupa mér Magic til þess að dagurinn færi nú ekki til ónýtis. Finnur fór nefnilega upp í sveit með stelpurnar svo ég hefði algjöran frið til að læra. Svo, út í búð fór ég og sýp núna á dýrindis Magic dollu. Sem er náttúrlega algjört svindl fyrir mig, ég má alls ekki drekka þennan óbjóð en oft var þörf en nú er nauðsyn! Ég lofa samt að drekka bara tvær dollur í dag og svo ekki meir!
Jæja, ég held að þetta sé farið að kikka inn... best að nota tækifærið og lesa um skólahald á Íslandi á 18. öld......... oj bara.
Athugasemdir
Var skólinn svona ógeðslegur á 18.öld að hann var bara "oj bara"
Steinn Hafliðason, 5.5.2008 kl. 20:30
Já hann var nú meiri viðbjóðurinn, ég get ekki einu sinni talað um það þá byrja tárin að renna...
annars á ég nú að vera að læra... hehe
Tinnhildur, 6.5.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.