Æði pæði

CoolÉg átti æðislegt kvöld með eiginmanni mínum í gær. Við fengum okkur að borða, fórum í pool (ég vann - í alvöru) og svo skelltum við okkur í bíó. Ég verð að viðurkenna að ég fór með engar væntingar vott só ever, þar sem við skiptum um skoðun á mynd á leiðinni inn í bíóið. Við ákváðum að sjá myndina Forgetting Sarah Marshall og ég skal segja ykkur það, ég hef sjaldan eða aldrei hlegið jafn mikið og svakalega eins og yfir þessari mynd! Hún er algjör snilld frá upphafi til enda! Don't miss it!

Annars er ég búin að vera voða dugleg í dag. Kláraði eitt tímaverkefni, prentaði út fullt af drasli (nennti svo ekki að lesa það!), undirbjó mig fyrir starfsþróunarviðtal sem er á morgun, þvoði 5 þvottavélar, 2 uppþvottavélar (ég á litla sko), þreif, sópaði, flokkaði rusl og pappír og gekk frá leikföngum. Kannski ekkert merkilegt svosem en ég er virkilega ánægð með þetta, sérstaklega það sem ég prentaði út og nennti svo ekki að lesa. Dæmigert fyrir mig svona á síðustu metrunum hehe Cool finna sér allt annað ómerkilegt að gera.

Eníhú... það er víst best að fara að ígrunda og ígrunda meira... vei!

ps. smá myndasjó... bara af því bara Grin

 

NýgiftSimmi og ArndísLitla fjölskyldan

 

Good times Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband